01 / Hönnun
Stjórnbúnaður og sjálfvirkni
Hönnun og samþætting stjórnkerfa spennistöðva. Samskipti, eftirlit og sjálfvirkni.
Sérþekking í raforkukerfum
Ráðgjöf, hönnun, stillingar og prófanir á stjórn- og varnarbúnaði. Sérþekking á stafrænum lausnum og IEC 61850.

Þjónusta
01 / Hönnun
Hönnun og samþætting stjórnkerfa spennistöðva. Samskipti, eftirlit og sjálfvirkni.
02 / Varnir
Ráðgjöf, hönnun, stillingar og prófanir á varnarbúnaði með rekstraröryggi að leiðarljósi.
03 / Gangsetning
Markvissar prófanir og sannprófun á virkni kerfa fyrir afhendingu.
Eigin þróun / Verkfæri í verkefnum
Við nýtum nýjustu tækni við hönnun og forritun og þróum verkfæri út frá þörfum raunverulegra verkefna. Markmiðið er að einfalda vinnuna, bæta samræmi gagna og skila betri og hagkvæmari lausnum.
01 / SCD Visualizer
SCD-skrá lýsir uppbyggingu og samskiptum IEC 61850-kerfis í spennistöð. SCD Visualizer er vefverkfæri sem Gridtech notar og þróar til að breyta þessum gögnum í sjónræna yfirsýn yfir tæki, tengingar og merkjaflæði. Það auðveldar yfirferð við hönnun, prófanir og gangsetningu.
02 / Merkjalisti
Gridtech notar og þróar Merkjalista til að halda utan um merki, búnað og gögn verkefna á einum stað. Lausnin tengir merkjavinnu við IEC 61850 og undirbúning SCADA-kerfa og styður skipulega yfirferð frá hönnun til gangsetningar.
Samstarfsaðilar
Gridtech leggur áherslu á náið samstarf og skýra verkaskiptingu við hönnun, forritun, prófanir og gangsetningu.
Gunnar Ingi Valdimarsson
Uppsetning, prófanir og gangsetning stjórn- og varnarbúnaðar í spennistöðvum.
Bjarni Jónsson
Kristján Þórarinsson
Verkfræðiráðgjöf, rafmagnshönnun og tæknilausnir.

Um Gridtech
Gridtech veitir sérfræðiþjónustu á sviði stjórn- og varnarbúnaðar í raforkukerfum, með sérþekkingu á stafrænum spennistöðvum og IEC 61850.
Við nýtum nýjustu tækni við hönnun og forritun til að skila betri og hagkvæmari lausnum fyrir hvert verkefni.
